← Back

Heilun jarðar

Cohort 2018

Heilun jarðar

Svepparíkinu má finna tegundir sem í sameiningu geta brotið niður öll helstu eiturefni er ógna lífi á jörðinni. Á matseðli þeirra eru kemísk, geislavirk og þrávirk lífræn efni, olíur og jafnvel plast. Sumir soga til sín þungmálma og afeitra með því jarðveginn í kring. Sveppir sundra þrávirkum efnum í meðfærilegri einingar sem aðrar lífverur geta nýtt sér. Þannig hrinda þeir af stað keðjuverkandi niðurbroti á eitruðum efnum sem að öðrum kosti safnast upp með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Þessir ferlar hefjast þó ekki fyrr en réttur sveppur kemur að vandanum. Verkefnið gengur út á vinna tíma, hraða því að náttúrulegir ferlar fari í gang og hefja ræktun á vel völdum sveppum á menguðum svæðum. Búa þeim skilyrði til lífs og hlúa að þeim meðan þeir ná fótfestu. Tilraunir sem gerðar hafa verið með hreinsunarstarf sveppa sýna fram á mjög skjótan og áhrifaríkan árangur.

More projects