Byggingarsamvinnufélag Samtaka um Bíllausan lífsstíl
Cohort 2018

Hugmyndin gengur út á að reisa og reka bíllaust hverfi í Reykjavík. Lagt verður upp úr því að byggja góðar og traustar íbúðir á viðráðanlegu verði en einnig verður boðið upp á leiguhúsnæði. Byggðin verður þétt en lágreist, með umhverfisvænu húsnæði. Þröngar göturnar verða göngugötur en bílum hleypt í gegn í neyðartilvikum. Nokkur bílastæði verða í útjaðri hverfisins. Hugmyndin er að gera þeim sem vilja lifa bíllausum lífstíl kleift að búa í notalegu umhverfi sem samræmist þörfum þeirra og hugsjónum.


