← Til baka

Farsæl öldrun - Þekkingarmiðstöð

Árgangur 2018

Farsæl öldrun - Þekkingarmiðstöð

Markmiðið með framtakinu er að koma á fót þekkingarmiðstöð í öldrunarþjónustu sem starfa mun á landsvísu, miðla þekkingu um öldrunarmál til starfsfólks og almennings með fjölbreyttum miðlunarleiðum og veita gagnreynda ráðgjöf til stofnana. Það er mikil þörf á að stuðla að nýrri menningu í öldrunarþjónustunni, bæta þjónustu og starfsumhverfi með notkun nýjustu þekkingar og aðferða og auka skilvirkni og nýtingu á því takmarkaða fjármagni sem er til ráðstöfunar innan atvinnugreinarinnar með því að gera þekkingu aðgengilegri á landsvísu. Jafnframt er mikilvægt að nýta fjölbreyttar aðferðir við þekkingarmiðlun, s.s. tæknimöguleika og auka vægi þekkingarmiðlunar meðal hópa sem starfa saman í því umhverfi sem starfið fer fram.

Fleiri verkefni