HEIMA
Árgangur 2021

HEIMA er smáforrit sem sér um skipulag og hugræna byrði heimilisins á skemmtilegan og jafnréttiseflandi máta. Konur og stúlkur sinna 75% heimilisverka á heimsvísu sem takmarkar tækifæri og möguleika þeirra í lífinu. Þess vegna byrjar jafnrétti heima, með jafnri verkaskiptingu og ábyrgð allrar fjölskyldunnar. HEIMA smáforritið skipuleggur og skiptir heimilisverkunum jafnt á milli fjölskyldumeðlima. Það gefur stig fyrir hvert unnið verk og sendir snjallar áminningar til að hvetja fólk áfram. Heimasíða


