Bergið Headspace
Árgangur 2018

Bergið headspace tók þátt í fyrsta Snjallræði haustið 2018. Þá hét það ekki Bergið headspace og hugmyndin var í raun bara á byrjunarstigum. Ég get með sanni sagt að Snjallræði hjálpaði okkur mjög mikið í að komast af stað. Ég fékk tækifæri til að koma og vinna með öðru skapandi fólki, fá leiðsögn og ramma utan um hvað gera þyrfti og sérstaklega að fá góða þjálfun í því að setja hugmyndina upp með skýrum hætti til að geta kynnt fyrir öðrum. Þannig varð hugmyndin raunhæfari, ég fékk aukið sjálfstraust í því að kynna hana, vinna raunhæfar áætlanir um þau skref sem taka þurfti og líka smá spark í rassinn með því að hafa stað til að mæta á hverjum degi til að vinna. Bergið headspace er í fullu fjöri, þar starfa samtals 15 manns núna í mismiklu starfshlutfalli. Við hittum 90-100 ungmenni í hverri viku og hjálpum þeim með að takast á við lífið. Frá upphafi höfum við unnið með um 2500 ungmennum og erum rétt að byrja. -Sigurþóra Bergsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Bergsins headspace


