Hvernig fer Snjallræði fram?
Snjallræði er hnitmiðaður háskólahraðall sem fer fram frá september fram í desember. Þátttakendur vinna markvisst að því að þróa hugmynd sína áfram með aðferðafræði MIT DesignX, undir leiðsögn sérfræðinga og mentora úr háskólasamfélaginu og atvinnulífinu.
.png&w=3840&q=75)
Hraðallinn byggist upp í kringum fjórar vinnustofur, sem fara fram bæði í Reykjavík og á Norðurlandi. Á milli vinnustofa hittast teymin á netinu í hópavinnu og mentorafundum þar sem þau fá stuðning við að færa verkefnin áfram.
Ferlið skiptist í fjóra meginhluta:
Skilningur - 11.-12. september
Fyrsta skrefið er að skilja vandamálið. Teymin kafa ofan í þarfir notenda, áskorunina sem þau vilja leysa og það samhengi sem hugmyndin sprettur úr.
Lausn - 25.-26. september
Næst færist fókusinn yfir á lausnina sjálfa. Teymin þróa hugmyndina áfram, prófa forsendur og skoða hvernig hægt er að skapa raunverulegt virði fyrir notendur og samfélag. Vinnustofan fer fram í tengslum við Hönnunarþing á Húsavík.
Sýn - 16.-17. október
Í þriðju vinnustofunni horfa teymin lengra fram á veginn. Hvert getur verkefnið farið, hverjir eru mögulegir notendur og samstarfsaðilar og hvernig getur hugmyndin vaxið og skapað áhrif?
Framkvæmd - 20.-21. nóvember
Í lokahluta hraðalsins er áherslan á að gera hugmyndina framkvæmanlega. Teymin vinna að næstu skrefum, viðskiptamódeli, fjármögnun og því hvernig verkefnið getur haldið áfram að þróast eftir Snjallræði.
Hraðlinum lýkur með lokaviðburði 10. desember, þar sem teymin kynna verkefni sín og þann árangur sem náðst hefur fyrir gestum úr háskólasamfélaginu, atvinnulífinu og nýsköpunarumhverfinu.
Mikilvægar dagsetningar
27. ágúst: Umsóknarfrestur
20. ágúst: Kynningarfundur í Háskólanum í Reykjavík
24. ágúst: Kynningarfundur á netinu
Um 4. september: Teymi fá tilkynningu um þátttöku
11. september: Hraðallinn hefst
10. desember: Lokaviðburður
.png&w=1080&q=75)
.png&w=1080&q=75)