Níu teymi taka þátt í Snjallræði 2026
Eftir vandaða yfirferð fjölda umsókna er nú ljóst hvaða níu teymi taka þátt í Snjallræði háskólahraðli þennan veturinn.
Umsóknarfrestur í Snjallræði háskólahraðal rann út í lok ágúst og bárust fjölmargar sterkar umsóknir, flestar úr háskólaumhverfinu. Eftir viðtöl og vandaða yfirferð er nú komið í ljós hvaða níu teymi halda áfram í hraðlinum þennan veturinn.
Teymin sem taka þátt í Snjallræði 2026 eru fjölbreytt: Allt frá umhverfisvænum umbúðalausnum og staðbundinni matvælaframleiðslu til stafrænna lausna í tungumálanámi og hönnun. Sameiginlegt er að öll verkefnin byggja á hugmyndum sem hafa burði til að hafa mikil áhrif til góðs.
FreshPak er hringrásarvæn umbúðalausn fyrir kældar ferskvörur sem heldur þeim ferskum og dregur úr umbúðaúrgangi.
Rót er stafrænn tískuvettvangur sem tengir sjálfstæða íslenska fatahönnuði beint við meðvitaða neytendur og gerir hæga tísku aðgengilegri.
Matstækið er mælitæki sem metur og sýnir raunverulegt eignarhald í þróunarsamvinnu.
AllergyID er fjöltyngd stafræn ofnæmislausn sem hjálpar einstaklingum, fjölskyldum og skólum að miðla og halda utan um upplýsingar um fæðuofnæmi á öruggan hátt.
Iðunnar Rækt ræktar örgrænmeti staðbundið með nýstárlegum aðferðum sem stuðla að auknu innlendu fæðuöryggi.
Orðavísir er íslenskunámsforrit og orðabók sem hjálpar fólki með íslensku sem annað mál og íslenskum börnum að ná tökum á kyni og beygingu nafnorða með markvissri þjálfun.
LABÉRA hannar rannsóknarsloppa fyrir konur sem sameina öryggi, þægindi og notagildi í sniði sem tekur mið af líkamsbyggingu kvenna.
OptiDesign er gervigreindarlausn sem hjálpar verkfræðingum og arkitektum að fínstilla BIM-hönnun á frumstigi með tilliti til kolefnisspors, kostnaðar, orkunotkunar og hagkvæmni burðarvirkja.
Stacco er hljóðfæri sem eflir hagnýtt og gagnrýnið gervigreindarlæsi með tónsköpun.
Hraðallinn sjálfur hófst 11. september með áherslu á fyrsta hluta ferlisins: Skilning, þar sem teymin vinna að því að greina vandann betur og skerpa á forsendum verkefnisins. Í framhaldinu taka við hópavinna og mentorafundir, áður en þátttakendur hittast á Hönnunarþingi á Húsavík dagana 25.–26. september. Í október og nóvember heldur ferlið áfram: dagana 16.–17. október verður unnið með Sýn, þar sem teymi móta skýrari framtíðarsýn fyrir verkefnin sín, og dagana 20.–21. nóvember verður áherslan á Framkvæmd — næstu skref og framsetningu verkefnanna. Ferlinu lýkur með lokaviðburði 10. desember, þar sem teymin kynna verkefnin sín og árangur vetrarins.
.png&w=1080&q=75)
.png&w=1080&q=75)
.png&w=1080&q=75)